Flóttamenn

11. maí 2009

Mál flóttamannsins, Hitchem Mansrí er mikið á milli tannana á fólki og fjölmiðla þessa dagana. En einsog flestir vita þá er hann Hitchem í hunguverkfalli, vegna þess að ísl stjórnvöld eru ekki en búinn að veita honum dvalarleyfi. Ástæðu þess að hann hefur ekki fengið dvalarleyfi veit ég ekki. En margir íslendingar eru að missa sig vegna þess hversu ómannúðleg stjórnvöld eru og hversu illa fram við flóttafólk er komið, hér á landi. Eitt skulum við hafa á hreinu. Og líta á eftirfarandi dæmi.

Ungur maður í ókunnu landi fremur voðaverk. Lögreglan er á eftir þeim sem framdi verkið en veit ekki með vissu hvað það er. Ungi maðurinn ákveður að villa sér heimildir. Hefur samband við vegabréfsfalsara og splæsir í nýtt vegabréf með öðru ríkisfangi en hans eigin. Og svona fyrst hann er nú kominn með nýtt vegabréf ákveður hann að splæsa í eitt í viðbót ( Backup) ef hitt bregst. Jæja ungi maðurinn er kominn með vegabréfið í hendurnar og heldur til evrópu. Fyrsta stoppistöð er Grikkland. Við vegabréfsskoðum framvísar hann vegabréfinu og enginn veitir athygli að hann sé með falsað vegabréf. Hann dvelst í Grikklandi í einhvern tíma en ákveður að hann vilji fara til Íslands. Og þangað fer hann. Þegar hann er kominn í til Íslands er hann gripinn við búðarhnupl eða annað minniháttarbrot. Við rannsókn á unga manninum kemur í ljós að hann er hvorki með útgefið dvalar eða atvinnuleyfi hér á landi og því er hann handtekinn. Við nánari athugun á unga manninum kemur í ljós að hann er með falsað vegabréf, þar sem gefið er upp falsk nafn og kt.( Annað vegabréf en hann framvísaði í Grikklandi) umsvifalaust áttar ungi maðurinn sig á þvi að hann hefur verið gripinn og í stað þess að láta vísa sér úr landi, grípur hann til þess ráðst að biðja um pólitískt hæli. Segist vera frá langt í burtistan og ef hann verður sendur þangað verði hann drepinn, vegna afskipta sinna af pólitík. Gott og vel það er vel hægt að kaupa það. Kemur þá að þvi að hann er beðinn um rétt nafn og kt. Framreiðir hann þá eitthvað allt annað nafn og kt en hann í raun og veru ber. Fara þá yfirvöld að kanna hvort maðurinn sé skráður í langtíburtuistan, svo reynist ekki vera. Jæja hvað er þá hægt að gera. Jú senda manninn á stað þar sem hann getur verið á meðann rannsakað er hver hann sé í raun og veru. Ekkert gengur og alveg sama hvað maðurinn segir þá finnst aðilinn bara ekki í neinni þjóðskrá. Jæja hvað er hægt að gera?  Bara taka þvi trúalega sem hann segir? Alveg sama hvað er tautað og raulað ekkert fæst uppúr manninum um hver hann í raun og veru er og ekki vill útlendingastofnum senda mann út á götur landsins sem enginn veit hver er. Nú jæja yfirvöldum fer að gruna að eitthvað gruggust eigi sér stað á heimili unga mannsins og fleiri flóttamanna. Er þvi ákveðið að fara í húsleit eftir rannsókn, sem hefur leitt af sér rökstuddan grun um að eitthvað gruggust kunni að vera á heimili flóttamannana. Fer svo að farið er i húsleit með úrskurð dómara. Vill það svo til að þegar farið er í þannig aðgerðir að það er gert frekar fljótt. Með öðrum orðum það er farið hratt inn með mikinn mannskap til að ná stjórn á vettvangi og frysta, til að sönnungargögn kunni ekki að spillast.Kemur þar í ljós að hælisleitendurnir eru ekki við alla fjölina felldir. Sumir hafa í fórum sínum, fleiri en eitt vegabréf, peninga, og önnu gögn sem þeir létu hjá líða að láta yfirvöldum í té þegar þeir komu hingað. Byrjar þá ballið. Til þess að afvegleiða landann og fjölmiðla er strax farið í það að beina athyglinni frá því hvernig ástatt hafi verið á flóttamannaheimilnu og hvað þar hafi fundist. Fer umræðan aðalega að snúast um hvernig yfirvöld hafi hagað sér og ráðist inn í húsið og það sem inní því fannst verður algert aukaatriði. Flóttamennirnir sem hér voru á fölskum forsendum verða strax fórnarlömb feykilegrar mannvonsku og mannréttindabrota.

Þannig að þetta er ósköp einfalt. Ef við lítum á Ísland sem heimili okkar. Viljum við þá ekki fá að vita hver það er sem þar kemur inn? Efast um að nokkur islendingur yrðu mjög sáttur ef bara einhver maður sem hann veit ekkert hver er, væri að sniglast inn á heimili hans. Allavegna yrði ég ekki sáttur.

P.s Alveg skal ég hundir heita ef einhver sem þetta les, telur mig ekki vera rasista.

Wanabees

11. mars 2009

Nú er runninn upp sá tími að pólitíkusunum er farið að finnast þú skipta feykilega miklu máli.Oftar en ekki gerist það þessa daganna að hinir og þessir wannabees, hafa samband við fólk og biðja um stuðning þeirra í prófkjörum. Lofa upp í ermina á sér hversu góðir og gegnsæir þeir séu. Merkilegast af þessu öllu er að um leið og prófkjör og alþingiskosningar eru búinn, hætta wanabeein að hafa samband og láta ekkert í sér heyra fyrr en eftir 4 ár að öllu jöfnu.

Gaman er nú að sjá auglýsingar margra þessara wanabees. Láta dubba sig upp á flottri mynd með alþýðlegan svip og flott slagaorð sem á að vísa í hversu öflugt og gott fólk sé þarna á ferð.

Mikið væri ég til í að sjá slagorð sem lýsir þeim á réttan hátt og væri hægt að tengja við störf þeirra í gegnum tíðina. T,d

Birgir Ármansson: ‘’Stöndum vörð um eftirlaunaósómann'’

Pétur Blöndal: ‘’Einkavæðum allt draslið'’

Sigurður Kári: ´´Hannes Hólmsteinn sagði mér það´´

Kristján Möller ´´ Þið fáið enginn göng ´´

Eitthvað í þessa áttina vildi ég að þessir menn segi. Það er líka einkar gaman að heyra hinu fyrverandi ráðherra gömlu ríkistjórnarinnar tala um að það þurfi að fara að skera niður. Að allir verði að standa saman. Samt dettur þeim ekki í hug að hafna biðlaununum.
 

10. mars 2009

Boginn útrásarvíkingur

21. febrúar 2009

Varð fyrir þeirr súrralísku upplifun í gær að vera að keyra heim og  hlusta á þetta lag.  Þegar einn fyrv útrásarvíkingurinn og kennitölu flakkarinn, svínaði fyrir mig á gamla útrásar jeppanum sínu. Þetta lag var alveg lýsandi dæmi um aðilann sem ók þarna um .Einhverja hluta vegna gat ég ekki annað en séð aumur á þessum manngarmi. Hvers vegna veit ég ekki. Hugsanlega vegna þess að ég er þess fullviss um að hann hafi samvisku. Og tel þarafleiðandi að græðgi hans og hroki séu farinn að naga hann inn að beini. Hvernig ætli það sé að vera búinn að skella þjóðinni í skuldarfen og leika sér með fyrv almannaeigur og lífviðurværi almenning eins og spilastokk?Fyrir

Annars er ég að horfa á Gettu Betur þessa stundina. Verð að segja að Útsvar er spurningkeppni sem er mér meira að skapi.

Óskar Bergsson

18. febrúar 2009

Jæja hvar skal byrja. Óskari Bergssyni, finnst ekkert sjálfsagðara en að borgarbúar borgi snittur, bjór og léttvín ofan í Kidda Óskars og Gulla á Rein á meðan þeir ´´fóru yfir heimskreppuna´´. Hefði verið stórkostlegt að vera fluga á vegg meðan fundurinn fór fram. Efast ekki um að lausn kreppunnar hafi svo gott sem orðið til á þessu fundi. Annars langar mig að hrósa spyrli Kastljóssins fyrir að leyfa Óskari ekki að komast undan því að svara , hversvegna borgarbúar hafi átt að borgar fyrir móttöku framsóknarmanna. Hann gerði óheiðarlega tilraun til að koma sér undan við að svara. Sem er reyndar ekki nema von. Maðurinn er jú framsóknarmaður og ekki hafa heiðarleiki og almannahagsmunir, beint verið kjörorð framsóknar undanfarinn ár.

Merkilegir menn

7. febrúar 2009

Það er mikilvægt að þetta sé á hreinu.

En mikið óskaplega leiðast mér stjórnmálin þessa daganna. Ætli það verði svo að þjóðin og komandi kynslóðir þurfi að búa við þetta þetta skipulag lýðveldisins?

Annarrs fagna ég því að Hannes Hólmsteinn Gissurarson, kapítalismi og ríkistarfsmaður, skuli vera kominn fram á sjónvarsviðið. Hafði hvork heyrt né séð til hans eftir að hrunið í október.  Enda ekki ólíklegt að hann hafi þurft að skríða undir felld og horfast í auga við þann bitra sannleika að hugmyndfræði hans og hugsjónir hafi hrunið á einni viku. Aftur á móti er hann ekki fram kominn til að viðurkenna mistök sín. Heldur hafa hann og Kjartan Gunnarsson, komið vígreifir fram af ótta við að Davið hverfi af sjónarsviði íslenskra stjórnamála og þarafleiðandi ekki ólíklegt að þeir óttist hag sin. Þeir gætu allt eins staðið fyrir því að þurfa komast áfram í samfélagi mannanana í á eiginverðleikum frekar en flokkskírteini.

Óeirðarbílar

6. febrúar 2009

Nú loga bloggheimar og þá aðalega hjá moggabloggurun vegna athugana ríkislögreglustjóra um að fá hingað til lands óeirðarbíla.

 

Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að 70% sem láta móðan hvað mest mása vegna þessa, hafa ekki hugmyndum hverskonar tæki þetta eru og tilhvers þau eru aðalega notuð. Svona til að halda því til haga þá eru þessu ökutæki ekki útbúinn neinum vopnum. Á þeim er ekki vélbyssuhreiður, sprengivarpa né nokkuða annað. Þetta er í raun og veru bifreið sem er  betur varinn en hefðbundar bifreiðar og þola töluvert veira heldur en mannslíkaminn. T,d rotast hún ekki né brotnar ef í hana er grýtt grjóti, ef hníf er stungið á hjólbarðanna skaðast þeir ekki. Öfugt við það ef hníf er stungið í fótlegg lögreglumanns.

 

Mér finnst alveg með ólíkindum hvað fólk er fljótt að alhæfa þegar eitthvað svona kemur til tals. Spyrja mætti hvað smiði inn á byggingasvæði þyki ákjósanlegur öryggisbúnaður þegar hann er við störf? Hugsa að hann vilji hafa hjálm á höfði og stáltá í skó. Er þá eitthvað ólíklegra að lögreglumaður við  mannfjöldastjórnum þyki ákjósanlegur öryggisbúnaður. T,d er mjög gott að geta leitað skjóls í bifreið sem ver hann fyrir grjóti og eldum. Finnst oft að fólk ætti að slaka aðeins og draga andann áður en það fer að alhæfa um að stjórnendur lögreglunnar séu ofbeldismenn sem vilji almenningi ekkert nema vont.

 

P.s Hafið þið tekið eftir að allir sem fengu piparúða framan í sig niður við alþingi voru ekki að mótmæla. Voru bara að horfa á!

Alþingi

4. febrúar 2009

Er að horf á beina útsendingu frá Alþingi núna. Sýnist þetta aðalega snúast um hugmyndafræðilega uppbyggingu. Vg, framsókn, samfylking og frjálslyndir tala aðalega um græðgisvæðinguna. Sjálfstæðismenn sjá ekki en að nokkuð hafi verið að og gagnrýna hina nýju stjórn fyrir að vera búinn að klúðra efnahag landsins síðastliðna þrjá daga. Ætli við eigum nokkra von.

31. janúar 2009

Jahérna. Mér er ekk orðum auðið.

ritstífla

29. janúar 2009

Það leit allt útfyrir að það stefndi í ritstíflu. En svo tók ég mig á og skrifaði allt þetta.