Flóttamenn

11. maí 2009

Mál flóttamannsins, Hitchem Mansrí er mikið á milli tannana á fólki og fjölmiðla þessa dagana. En einsog flestir vita þá er hann Hitchem í hunguverkfalli, vegna þess að ísl stjórnvöld eru ekki en búinn að veita honum dvalarleyfi. Ástæðu þess að hann hefur ekki fengið dvalarleyfi veit ég ekki. En margir íslendingar eru að missa sig vegna þess hversu ómannúðleg stjórnvöld eru og hversu illa fram við flóttafólk er komið, hér á landi. Eitt skulum við hafa á hreinu. Og líta á eftirfarandi dæmi.

Ungur maður í ókunnu landi fremur voðaverk. Lögreglan er á eftir þeim sem framdi verkið en veit ekki með vissu hvað það er. Ungi maðurinn ákveður að villa sér heimildir. Hefur samband við vegabréfsfalsara og splæsir í nýtt vegabréf með öðru ríkisfangi en hans eigin. Og svona fyrst hann er nú kominn með nýtt vegabréf ákveður hann að splæsa í eitt í viðbót ( Backup) ef hitt bregst. Jæja ungi maðurinn er kominn með vegabréfið í hendurnar og heldur til evrópu. Fyrsta stoppistöð er Grikkland. Við vegabréfsskoðum framvísar hann vegabréfinu og enginn veitir athygli að hann sé með falsað vegabréf. Hann dvelst í Grikklandi í einhvern tíma en ákveður að hann vilji fara til Íslands. Og þangað fer hann. Þegar hann er kominn í til Íslands er hann gripinn við búðarhnupl eða annað minniháttarbrot. Við rannsókn á unga manninum kemur í ljós að hann er hvorki með útgefið dvalar eða atvinnuleyfi hér á landi og því er hann handtekinn. Við nánari athugun á unga manninum kemur í ljós að hann er með falsað vegabréf, þar sem gefið er upp falsk nafn og kt.( Annað vegabréf en hann framvísaði í Grikklandi) umsvifalaust áttar ungi maðurinn sig á þvi að hann hefur verið gripinn og í stað þess að láta vísa sér úr landi, grípur hann til þess ráðst að biðja um pólitískt hæli. Segist vera frá langt í burtistan og ef hann verður sendur þangað verði hann drepinn, vegna afskipta sinna af pólitík. Gott og vel það er vel hægt að kaupa það. Kemur þá að þvi að hann er beðinn um rétt nafn og kt. Framreiðir hann þá eitthvað allt annað nafn og kt en hann í raun og veru ber. Fara þá yfirvöld að kanna hvort maðurinn sé skráður í langtíburtuistan, svo reynist ekki vera. Jæja hvað er þá hægt að gera. Jú senda manninn á stað þar sem hann getur verið á meðann rannsakað er hver hann sé í raun og veru. Ekkert gengur og alveg sama hvað maðurinn segir þá finnst aðilinn bara ekki í neinni þjóðskrá. Jæja hvað er hægt að gera?  Bara taka þvi trúalega sem hann segir? Alveg sama hvað er tautað og raulað ekkert fæst uppúr manninum um hver hann í raun og veru er og ekki vill útlendingastofnum senda mann út á götur landsins sem enginn veit hver er. Nú jæja yfirvöldum fer að gruna að eitthvað gruggust eigi sér stað á heimili unga mannsins og fleiri flóttamanna. Er þvi ákveðið að fara í húsleit eftir rannsókn, sem hefur leitt af sér rökstuddan grun um að eitthvað gruggust kunni að vera á heimili flóttamannana. Fer svo að farið er i húsleit með úrskurð dómara. Vill það svo til að þegar farið er í þannig aðgerðir að það er gert frekar fljótt. Með öðrum orðum það er farið hratt inn með mikinn mannskap til að ná stjórn á vettvangi og frysta, til að sönnungargögn kunni ekki að spillast.Kemur þar í ljós að hælisleitendurnir eru ekki við alla fjölina felldir. Sumir hafa í fórum sínum, fleiri en eitt vegabréf, peninga, og önnu gögn sem þeir létu hjá líða að láta yfirvöldum í té þegar þeir komu hingað. Byrjar þá ballið. Til þess að afvegleiða landann og fjölmiðla er strax farið í það að beina athyglinni frá því hvernig ástatt hafi verið á flóttamannaheimilnu og hvað þar hafi fundist. Fer umræðan aðalega að snúast um hvernig yfirvöld hafi hagað sér og ráðist inn í húsið og það sem inní því fannst verður algert aukaatriði. Flóttamennirnir sem hér voru á fölskum forsendum verða strax fórnarlömb feykilegrar mannvonsku og mannréttindabrota.

Þannig að þetta er ósköp einfalt. Ef við lítum á Ísland sem heimili okkar. Viljum við þá ekki fá að vita hver það er sem þar kemur inn? Efast um að nokkur islendingur yrðu mjög sáttur ef bara einhver maður sem hann veit ekkert hver er, væri að sniglast inn á heimili hans. Allavegna yrði ég ekki sáttur.

P.s Alveg skal ég hundir heita ef einhver sem þetta les, telur mig ekki vera rasista.



2 ummæli við „Flóttamenn“

  1. Andri Valur ritaði:

    Helvítis rasisti. Ég fæ hroll við að lesa svona níð…:)
    En að öllu gamni slepptu þá þekki ég þetta mál ekki neitt. Sé þetta eins og þú gefur í skyn, þá myndi ég telja að hann væri sjálfur búinn að mála sig út í horn með því að reyna áfram að villa á sér heimildir.
    Hvaða voðaverk ertu að tala um í byrjun?

  2. Höddi S. ritaði:

    Já þetta er algjör asni

Rita ummæli